Fréttir
Fréttir og greinar
Bókanir
Styrkir
Um Landsmennt
Tenglar
Veftré
Umsóknarblöð á netinu
Fréttir - 15. júní 2010
Breyting á reglum um einstaklingsstyrki

Stjórn Landsmenntar hefur ákveðið að taka upp eftirfarandi viðbót við reglur sjóðsins um einstaklingsstyrki;

Starfstengt réttindanám: Félagsmenn ...


 
Fréttir - 31. maí 2010
Ársskýrsla Landsmenntar 2009

Árið 2009 hefur verið gert upp af stjórn Landsmenntar og er staða sjóðsins sterk, hvort heldur sem litið er á fjárhagslega stöðu eða stöðu gagnvart fjölda ...



Starfsgreinasambandið

Samtök atvinnulífsins
31. maí 2010

Ársskýrsla Landsmenntar 2009

Ársskýrslan á heimasíðu Landsmenntar

Árið 2009 hefur verið gert upp af stjórn Landsmenntar og er staða sjóðsins sterk, hvort heldur sem litið er á fjárhagslega stöðu eða stöðu gagnvart fjölda verkefna sem sjóðurinn hefur komið að.

 

Styrkloforðum til fyrirtækja fjölgaði um 38% á milli ára og er ánægjulegt að sjá hversu vel fyrirtæki hafa tekið við sér í tengslum við endur-og símenntun starfsmanna sinna. Það er ekki síður mikilvægt að sinna þessum þætti á tímum kreppu og aðhalds heldur en á tímum uppgangs og þennslu.

 

Styrkjum til einstaklinga fjölgaði einnig á milli ára og voru greiddir út samtals 1769 styrkir á árinu. Nýting félagsmanna aðildarfélaganna hefur verið mjög jöfn á milli ára og núna fjölgaði þeim um 5%. Þá er skipting á milli karla og kvenna nánast til helminga en karlar eru með 52% styrkjanna á móti 48% kvenna.

 

Unga fólkið í aðildarfélögunum er langstærsti hópur notenda sjóðsins þar sem hópurinn 21-30 ára fólk er um 37% af heildinni.

 

Sjá nánar ársskýrslu hér. 

 



aftur í yfirlit

 Landsmennt - Skeifan 8, 2. hæð - 108 Reykjavík - 599 1450 - landsmennt@landsmennt.is